Þessi vefur er í eigu Spinnegal
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra skilmálana og hvetjum þig til að kynna þér þá áður en þú notar vefinn.
Með því að nota vefinn samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
Ábending er varðar handspunnið garn
Allt handspunnið garn er einstakt og ekki eins og vélaspunnið vara, uppgefnar metratölur eru ekki nákvæmar heldur sirkaðar út með útreikningum.
Við mælum með að þvo alla ull og handspunnið garn með ýtrustu varkárni.
Við leytumst alltaf við að taka myndir sem sýna sem best raunverulegan lit og áferð vöru hverju sinni.
Því miður skila litir sér ekki alltaf eins á milli skjáa og getum við ekki ábyrgst að varan sem kaupandi fær í hendurnar sé nákvmælega eins og hún sást á viðkomandi skjá.
Notkun vefs
Það er velkomið að nota vef til að vafra, skoða vörur og versla við Spinnegal.
Þér er ekki velkomið að nota neitt af þeim texta, myndum, grafík, vörum sem finnst á vefnum með ólöglegum eða ósamþykktum hætti. Þetta á einnig við um höfundaréttarvarið efni. Þú hefur ekki leyfi, undir neinum kringumstæðum, til þess að dreifa á þessum vef eða í gegnum þennan vef né neinu af þeim net- eða vefföngum sem kunna að tengjast þessum vef, vírusum, tölvuormum eða öðru sem telst vera eyðileggingartól.
Öryggis- og persónuskilmálar
Þær persónuupplýsingar sem gefnar eru upp þegar viðskiptavinur framkvæmir kaup á þessari vefsíðu, er farið með sem trúnaðarupplýsingar og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Óski viðskiptavinur eftir því að persónuupplýsingum verði eytt úr gagnagrunni okkar, skal senda beiðni um það á
spinnegal@spinnegal.is
Greiðslumáti
Þú getur greitt með millifærslu á reikning:
RN – 0536-14-401135
KT – 171190-2749
Sendingargjald bætist við áður en gengið er frá kaupum og greiðslu.
Sendingarmáti
Greiddar vörur er hægt að sækja á Suðurgötu 96, 220 Hafnarfirði, eða fá sendar með Dropp.
Þegar um ræðir sendingu með sendingaraðlila gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar.
Samkvæmt þeim skilmálum sendingaraðila bera Spinnegal ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru i flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá okkur er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Við sendum vörur alltaf frá okkur eins fljótt og auðið er, en getum ekki ábyrgst tafir eða aðrar uppákomur hjá sendingaraðila.
Skattar og tollar
Verð á þessum vef eru birt með virðisaukaskatti.
Skila og skipti
Það er í boði að skila eða skipta vöru sem þegar er greidd, að því gefnu að hún sé heil. Ekki er hægt að skila útsöluvörum.
Viljir þú skila vöru, fæst inneign hjá Spinnegal.
Þú þarft að skila vörunni eða skipta í sölulegu ástandi innan 14 daga frá móttöku til þess að fá inneign eða vöru skipt. Við áskiljum okkur rétt til að meta hvort varan er endurseljanleg og tökum ekki við vörum teljum við þær vera óseljanlegar.
Sendingarkostnaði varðandi vöru sem skilað er eða skipt, er samkomulag hverju sinni.
Við berum ekki ábyrgð á vörum sem skilað er eða skipt á meðan þær eru í póstferli.
Hvert á að senda vöru sem á að skila/skipta
Vörum sem á að skila/skipta þarf að koma á þetta heimilisfang:
Suðurgata 96
220 Hafnarfjörður
Ísland
Steinunn Harpa Einarsdóttir
Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur vefverslunar Spinnegal, á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.